|
|
24.12.2008 16:42:23 / teebee
Er að stússast í eldhúsinu eins og í laginu, nú er Gunna á nýju skónum. Við litla fjölskyldan erum bara fjögur heima í rólegheitunum og ætlum að borða hamborgarahrygg. Það er bara allt að smella og best að haska sér í jólabaðið.
Peace
Tinna
»
05.11.2008 00:35:18 / teebee
Útskriftardagurinn minn var mjög ánægjulegur, nett maraþon en kom á óvart. Get ekki sagt að ég hafi verið mjög spennt kvöldið fyrir þegar ég stóð hérna heima að græja kökur. Sagði við Hörð að ég ætlaði ekki að halda veislu þegar ég gifti mig, þetta er bara allt of mikið drama! Ég vaknaði svo bara og kúrði með fjölskylduni um morguninn, var mætt kl 11.30 í Háskóabíó með Völu systur og um leið og forsetinn og allir prófesorarnir gengur inn í salinn fékk ég nettann hroll  Ég var í alvöruni að útskrifast eftir 3 ára blóð svita og tár og var bara dálítið stolt. Ekki síður var ég stolt af Völu systur fyrir að vera að ljúka 5 ára massífu námi og vera komin á mjög góðan stað í lífinu, litla systir mín sem ég ó upp........ með mömmu og pabba!! Litla kaffiveislan varð svo 20 manna veisla hérna heima og strax eftir hana tók matur í Perluni með systrum, m&p, a&ö og tveimur frænkum. Kl 22.00 var ég orðin svo þreytt að ég gat varla talað. Það var því ljúft að komast í rúmið um kvöldið. Netta spennufall eftir útskrift og síðasta vika leið hratt. Hörður í fyrsta prófi í sínu námi strax á miðvikudaginn í síðustu viku. Ég er raunar búin að vera frekar dauf síðustu daga, eithvað frekar erfiðir daga hjá mér, svo sem ekkert nýtt hjá mér. Dreyf mig samt aðeins út á föstudagskvöldið síðasta og hitti gamla skólafélaga, var svo ómöguleg daginn eftir af því að ég var svo þreytt, ekki einu sinni timbruð enda var ég á bíl. Var samt rosa glöð í dag þegar ég komst að því að ég átti smá pening inn á námslánareikningsbókini minni í bankanum, það hlaut líka að vera ég hafði ekkert heyrt frá bankanum en þeir eru vanir að láta heyra strax í sér í lok hvers námsárs ef að það er mínus sko!! Ég ætla semsagt að nota hluta af peningnum og kaupa mér 2 mánaðarkort í wordclass á verði eins!!!! Massa tilboð. Get ekki beðið eftir því að komast í ræktina enda ekki svittnað þar í rúmt ár!!!! Ég ætti nú að hressast eithvað við það. Hörður er í prófi á morgun og á laugardaginn og þá get ég farið að taka á því. Fleira er það ekki í kvöld
»
23.10.2008 22:11:14 / teebee
Já ég hef ekkert bloggað síðan fyrir kreppu og í mínum huga urðu einhver þáttaskil í lífi mínu fimmtudaginn 9. október. Samfélagsbreytingarnar sem hafa orðið á síðustu vikum er eins og slæmur draumur og ég var í raun fyrstu dagana að vona að ég myndi vakna, án gríns. Ég hef aldrei upplifað svona sterkt áður að hugsa bara að þetta geti ekki verið og mig hljóti bara að vera að dreyma, auk þess að finna fyrir vanmáttarkennd, trúleysi á stjórnvöld og umheiminn. Versta er að maður hefur það á tilfinninguni að botninum hafi ekki verið almennilega náð. Eina sem maður getur gert er hugsa um sitt nær umhverfi, fyrst og fremst fjölskylduna og hlúa að henni. Hugsa jákvætt og tekið einn dag fyrir í einu. Ég er líka að reyna að lifa lífinu eins og áður en það er samt svo margt breyst, maður sér það bara á öllum og skynjar í umhverfinu. Ekki taka því sem svo að maður sé lagstur í þunglyndi, síður en svo maður hugsar sennilega bara meira um grunn gildin í lífinu. Það helsta sem er að gerast í mínu lífi annars er að næsta laugardag er ég loksins að útskrifast úr stjórnmálafræðini og í tilefni af því ætlum við Vala sem er að útskrifast sem lögfræðingur að halda smá kaffiboð heima hjá mér. Um kvöldið verður svo farið út að borða í Perluna. Kamilla Britt dafnar frábærlega og er þvílíkur engill, einmitt 12 vikna í dag. Elma Eik er svo stóra systir í fullu starfi og er alltaf að bralla eithvað....... okkur foreldrunum oft til mikillar ánægju! Ég byrjaði að þrýfa fyrir jólin í vikuni og keypti jólakjóla á stelpurnar í dag. Auk þess sem ég er langt komin með jólagjafirnar. Held að það sé bara um að gera að fara að njóta jólaundirbúningsins sem læðist inn á næstunni. Ég ætla allavega að gera það þrátt fyrir allt auk þess sem ég á bara eftir ca 10 vikur af fæðingaorlofinu eða þar til skólinn byrjar hjá mér.
Kerti, kósý og knús eru málið þessa dagana.
»
18.09.2008 16:18:16 / teebee
Á fimmtudags kvöldið 11. sept. gáfumst við upp og nefndum lilluna okkar, hún á að heita Kamilla Britt Tulinius. Þar sem við vorum komin með nafn og farin að nota það og Elma Eik farin að tala um Kamillu í leikskólanum þá ák. við að það væri bara best að nefna hana, enda eigum við enn eftir að finna rétta tímann fyrir skírn. Við erum rosalega ánægð með nafnið, það fyrra var ák. í sumar áður en hún fæddist en hitt fann Hörður á netinu eftir að hún fæddist og okkur fannst það báðum svo flott og öðruvísi. Flest allir sem spurja samt hvaðan Britt komi, en það er semsagt alveg út í loftið.
Ég skilaði BA ritgerðini minni í hádeginu, föstudaginn 12. september. Ó lýsanleg tilfinning og endalaus léttir, þetta hafðist og ég var bara nokkuð ánægð þegar upp var staðið. Niðurstaðan ætti svo að liggja fyrir í kringum næstu mánaðarmót.
Ég er semsagt næstum því búin að vera í heila viku, bara í fæðingaorlofi. Um helgina var nóg að gera, það þurfti að taka til og ganga frá hlutum sem hafði verið slegið á frest allt of lengi. Aumingja Hörður fékk því ekkert frí, alltaf nóg að gera. Á mánudaginn var mér skipað að vera heima, þetta var frekar skrítinn dagur bara heima að hugsa um Kamillu Britt og horfa á Friends. Fékk nefninlega allt Friends safnið í jólagjöf frá Herði jólin ´05 og byrjaði þá á fyrsta þættinum og var ekki komin í nema 3. seríu! Ég er svo mest búin að vera heima alla vikuna, fyrir utan gærdaginn þegar ég kíkti aðeins í löns með Heiðu Sigrúnu. Sem betur fer er ég búin að ná að sofa slatta í vikuni, enda Kamilla Britt alltaf jafn góð. Ég er samt enn að venjast þessu að hafa ekki neina pressu á mér, eithvað stess og verkefni sem þarf að klára, held að ég verði að njóta þess sem mest þar til ég byrja í framhaldsnáminu eftir jól.
Kveðja
Tinna í orlofi
»
02.09.2008 15:55:14 / teebee
Ég er semsagt sveitt að klára BA ritgerðina mína sem á að skila fyrir föstudaginn 12. september kl 15.00. Er komin með nett ógeð og vil bara fara að drífa þetta af, er búið að hanga yfir mér nánast allt árið. Svona til að kóróna þetta allt saman þá er ég hálf veik, hálsbólga, hor, beinverkir og skemmtilegheit. Er samt snillingur í því að ná mér í veikindi í prófum eða skólatörnum!!! Annars var Hörður að byrja að vinna eftir frí og ég þarf því að vera enn þá duglegri, þar sem ég er orðin ein með dúlluna hérna á dagin.
Jæja ég þarf að halda áfram í BA skrifum, dúllan sefur úti í vagni (fór í fyrsta skipti út í vagn að sofa) og svo þarf ég að fara að sækja stóru stelpuna mína eftir smá stund á leikskólann.
Verð rosa dugleg að blogga í fæðinaorðlofinu um allt og ekkert!!!
»
04.08.2008 14:07:32 / teebee
Gullfallega prinsess nr 2 mætti 31. ágúst kl 11.15 og vóg 4560 kg og var 53 cm. Allt gekk eins og í sögu og við fjölskyldan í skýjunum. Hún er núna orðin 4 daga gömul og við mæðgur komum heim eftir 2 daga en verðum ekki formlega útskrifaðar fyrr en á morgun af spítalanum. Hún sefur bara og nærist og er algjör engill. Núna er það bara bjórstagjöf og að safna upp orku á ný og jafna mig. Svo þarf ég að fara að taka til hendini aftur í ritgerðini góðu, en sem betur fer er Hörður í fríi allan ágúst.
Þakka allar kveðjur sem okkur hafa borist Tinna tveggja barna móðir
»
29.07.2008 10:50:36 / teebee
Það eina sem er að gerast þessa dagana hjá mér er undirbúningur fyrir komuna á annari prinsessuni minni. Við keyptum okkur nýtt sófasett á laugardaginn, skiptum um gardýnur í gær og höfum verið að þrýfa! Þegar ég segji við, þá á ég við Hörð og mig á sófanum að stjórna, af því að ekki geri ég neitt í mínu ástandi. Sem betur fer byrjaði Hörður í fríi núna um helgina, sem er algjört æði, bæði af því að Elma Eik er enn heima eða búin að vera núna í 3 vikur í sumarfríi og ég óttarlega ósjálfbjarga eithvað. Hörður verðu svo í fríi út ágúst, sem er náttlega draumur. Ekki skemmir svo góða veðrið, þannig að við erum að reina að njóta þessa síðustu daga saman 3. Ég get ekki sagt að ritgerðin sé á blússandi þessa síðustu daga, get voða lítið orðið setið og einbeitt mér, svo er alltaf eithvað annað að hugsa um en ritgerðin er samt ekkert í svo slæmum málum, þetta hefur allt verið að mjakast hjá mér, væri samt til í að vera búin að skrifa aaaaaaðeins meira. Settur dagur er svo 3. ágúst en þrátt fyrir það verður lögð loka höndin á allt sem gera þarf áður.................... bara núna, Hörður er á fullu að þrýfa og ég að strauja smá, svo förum við bara í sund að tjilla og njóta góða veðursins, þar til prinsessan mætir á svæðið, þetta verður allavega öðruvísi Versló!!!
»
11.07.2008 16:56:35 / teebee
Þetta fer að taka enda...... settur dagur er 3 ágúst! Þannig að nú styttist þetta, ég verð brátt orðin 2 barna móðir  Ég hlakka alveg rosalega til að vera búin, þrátt fyrir það að meðgangan hafi gengið vel yfir það heila. Ég komst af því þriðjudaginn 27. nóvember 2007 að ég væri ólétt, það rétt fyrir próf. Þrátt fyrir það að fá svo veirusýkingu á jafnvagistaug tókst mér einhverveginn að taka 4 af 5 prófum sem ég átti að taka um jólin og vera með þessi skemmtilegu einkenni sem flestar konur finna fyrir 3 mánuðina eins og ógleði, næmu lyktarskini, þreytu og nettum pirring. Það var samt æðislegt að fá mánuð í jólafrí og þegar skólinn byrjaði aftur í janúar var ég komin yfir það versta og eins hættulegasta tímann. Auk þess sem ég hætti á þunglyndislyfjunum strax í byrjun janúar, sem gekk vonum framar. Ég fór í fyrstu mæðraskoðunina 23 janúar og þá hjá henni Úllu sem ég var líka hjá þegar ég var ólétt af Elmu Eik og svo daginn eftir í 12 vikna hnakkaþyktarmælingu sem kom mjög vel út. Ég skellti mér svo í viku ferð til Brussel með skólafélögunum, komin rétt tæpar 20 vikur á leið, sem gekk mjög vel. Ég fór svo í 20 vikna sónar mánudaginn 17 mars og þá kom í ljós að það var önnur stelpa á leiðini og við Hörður hlóum bara, enda bæði komin af svo miklu kvenna fjölskyldum að þetta þurfti ekki að kom á óvart og við náttlega í skýjunum að fá aðra prinsessu. Allt kom vel út í 20 vikna sónarnum og mér leið nokkuð vel, fann að vísu að álagið í skólanum þarna í kringum páska var farið að segja til sín og ég ák. að fresta BA ritgerðini minni þar til í sumar en taka allt annað. Það er í kringum 25 viku eða í lok apríl sem ég fer að finna fyrir grindini, eins og ég átti svo sem von á enda var hún að stríða mér mikið þegar ég var ólétt af Elmu Eik. Ég hafði verið í meðgöngusundi þegar ég var ólétt af henni og prófaði núna, áður en ég fór út til Brussel eða þegar ég var í kringum 15. viku en fann að það var of mikið að gera hjá mér að til að geta troðið sundinu inn, var bara aðeins of mikið enda allt aðrar aðstæður núna en fyrir 4 árum, ég á fullu í skólanum og með með barn heima, þannig að ég var aldrei nema 3 eða 4 vikur í sundinu í þetta sinn. Ég sat líka mikið þarna í lok apríl af því að 3 af 4 prófum sem ég tók í vor komu þarna í lok apríl öll á nokkrum dögum þannig að það var visst álag en gekk sem betur fer vel. í maí átti ég svo bara eina ritgerð og svo upptökupróf sem ég fékk undanþágu til að taka þarna í vor í staðin fyrir í ágúst, frá því um jólin. Ég var samt frekar óheppin og lagðist í rosa flensu þarna í maí en fékk sem betur fer auka frest á prófið sem reddaði mér alveg. Þegar skólanum lauk í lok maí, var ég orðin frekar þreytt, búin að þyngjast um 10 kg, grindin farin að stríða mér og ég ák. því að byrja ekki alveg strax að vinna í BA ritgerðini heldur hófst handa við hreiðurgerðina. Það er náttlega sveitt vinna, taka til í skápum, kaupa það sem vanntar og græja og gera, þannig að júní fór í það að mestu leiti, auk þess sem ég las nokkrar bækur sem ég hef ekki gert síðan fyrir krist. Þegar líða tók á júní mánuð og ég rétt komin yfir 30. vikurnar fór að bera á svefnleysi sem fer alveg rosalega í mig, kannski af því að þegar ég var sem verst af þunlyndinu svaf ég ekki og ég þarf að sofa mikið, alltaf þurft. Núna er júlí næstum hálfnaður ég komin 37 vikur á morgun og ég get ekki sagt að ég sofi mikið....... eiginlega bara fáránlega lítið og þá á einkennilegustu tímum. Ég hef sem betur fer bara enn þyngst um 11 kg. þrátt fyrir það að vera komin með slatta bjúg og vera slæm í grindini en það er svo sem ekki við öðru að búast svona á loka sprettinum. Að öðrðu leiti er allt eins og það á að vera, var einmitt í mónitor í morgun og hann kom svona glimmrandi út og á miðvikudaginn í næstu viku fer ég í vaxtasónar. Núna síðustu 2 vikurnar hef ég verið að reina að vera dugleg í BA ritgerðini sem gengur þokkalega vel bara, mætti ganga hraðar en ég er náttlega misjöfn á milli daga og svo er Elma Eik komin í sumarfrí í leikskólanum og öllum þjálfunum. Ég ætla því bara að reina að komast sem lengst með hana á þessum 3 vikum ca. sem eftir er og reina að eyða tíma með Elmu Eik. Stóra systir er nefninlega frekar lítil í sér þessa dagana og þarf á mömmu að halda, annars er hún búin að vera rosalega góð og skynjar greinilega að ég er orðin frekar þreytt og kannski ekki laust við að það sé smá kvíði í manni að fara að koma barni í heiminn, bæði svona almennt og svo líka í ljósi sögunar. Ég verð því afskaplega fegin og mikill léttir fyrir mig og Hörð þegar sú stutta verður komin í heiminn....... enda erum við meira að segja búin að finna nafn handa henni, eftir óralangt nafna krísutímabil!!! Nú meigið þið koma með ágiskanir??????
»
27.06.2008 19:02:01 / teebee
Ég er að hugsa rosalega mikið þessa dagana sem kemur kannski til af því að ég er hætt að sofa, svefn er ekki í boði hjá óléttum konum á síðasta þriðjungi meðgöngunar. Ég ligg því tímunum saman og bylti mér í rúmin og hugsa um allt milli himins og jarðar. Í nótt var mér hugsa til þess þegar Elma Eik var að fæðast og allt sem hefur gerst á þeim 4 árum frá því að hún fæddist í mínu lífi, svo fór ég að hugsa um þann tíma þegar ég þráði það bara mest í heiminum að einhver kæmi til mín og segði mér að allt yrði í lagi. Þegar Elma Eik var um eins árs kom í ljós að hún hafði orðið fyrir skaða í fæðingu eða meðgöngu og tíminn einn myndi leiða það í ljós hversu mikið og hvernig þessi skaði myndi lýsa sér hjá henni. Sjálfsagðir hlutir eins og að barnið færi að tala og labba voru allt í einu orðnir óvissu þáttur sem varð að koma í ljós með tímanum. Þetta er nátturlega versta martröð hvers foreldris að horfast í augu við og við tók óvissu tímabil og í raun er tíminn sem á eftir kom í móðu að stórum hluta þegar ég hugsa aftur. Ég man að Hörður fór til spá miðils einhvertíma á þessu tímabili og ég man að ég sótti hann og svo fór hann að rekja það sem miðilinn sagði og svo kom "hann sagði að það yrði allt í lagi með Elmu Eik" og ég man að ég var að keyra á hringtorgi og brotnaði bara saman og grét, þetta var sú setning sem ég þráði mest að heyra og þurfti að heyra á þessum tíma. Eftir nokkrar mínutur kom hræðslan og kvíðinn aftur, vitandi það að orð miðilsin væru kannski ekki alveg nóg til að fullvissa mig að þetta yrði allt í lagi. Þar sem ég lág upp í rúmi rann það allt í einu upp fyrir mér að þetta endaði með því að vera allt í lagi, Elma Eik er 4 ára yndisleg stelpa, sem þó er enn að kljást við líkamlega afleyðingar skaðans sem varð en hver hindrunin hefur verið yfirstigin og hún komið okkur og umhverfi sínu sífellt á óvart. Ég vil líka meina að þetta mótlæti hennar komi til með að móta hana og gera hana að sterkari og ekki síst þroskaðari einstakling og eigi því eftir að verða henni til framdráttar á einhvern hátt þegar hún verður fullorðin. Ég vil alls ekki meina að þetta sé tilfelli um að með tímanum dofnar sársauki og fólk fer að geta lifað með honum, heldur virkilega fór þetta allt saman vel, ég vildi bara að einhver hefði getað komið til mín og fullvissað mig um það fyrir 3 árum síðan og með því létt af mér tveggja ára kvíða og hræðslu. Það sem eftir stendur í mínum huga er sú reynsla og þroski sem ég jú tók út á þessum 2 árum og mikið þakklæti við Guð og æðri mætti sem klárlega komu til hjálpar. Einhverjum myndi finnast þessar hugmyndir um æðri mátt barnalega og kjánalega en þegar maður stendur frammi fyrir einhverju jafn óviðráðanlegu og því sem við Hörður gerðum með Elmu Eik, upplifir maður sig svo vannmáttugan og fer að spurja sig, hvað skal gera og hvert skal leita? Ég hef sagt við þá sem hlæja af þessu þakklæti mínu, að maður hlæji ekki þegar maður stendur farmmi fyrir einhverju eins og við gerðum og hver þarf að finna sína leið til að geta komist í gegnum svona lífsreynslu. Núna í þessum skrifuðum orðum strunsaði ummrædd 4 ára dramadrottning dóttir mín inn í herbergið sitt og skellti á eftir sér af því að hún átti að fara að taka til........ ég fór að hlæja og sagði "Hörður ertu ekki fegin"
»
03.06.2008 11:13:30 / teebee
Var að fatta það að ég er búin að blogga hérna í næstum 4 ár! Ótrúlegt að ég sé enn að tuða............. kannski ekki þegar ég hugsa út í það. Vil samt byrja á því að minnast á bls 22 í Fréttablaðinu í dag, þar sem Ásgeir Kolbeins situr heima í stofu á mynd og er að auglýsa eithvað gigg sem hann er að standa fyrir. Hann hefur samt aldrei verið appelsínugulari! Af því að hann er svona týpa sem googlar sig reglulega ætla ég að koma hér með skilaboðum til hans, "þú ert rauðhærður og með ljósa húð, dílaðu við það" Merzedes Club nærð því ekki að vera svona gul, öll til samans!!! Þá er það komið!
Annars er mest lítið að frétta. Vika síðan ég skilaði síðustu ritgerðini minni og er því búin með allt nema BA ritgerðina, sem ég er þó byrjuð á og ætla að klára núna í júní. Ég er því bara heimavinnandi, BA skrifandi húsmóðir þessa dagana. Það er svo sem ágætis tilbreyting, að vera ekki með 1000 þúsund ó kláruð verkefni á sinni könnu, heldur bara að hugsa um Elmu Eik, koma henni í þjálfanir og reina að gera eithvað skemmtilegt með henni eftir leikskóla og svo að sjálfsögðu að vinna í BA. Ekki má gleima að óléttan er farin að taka sinn toll og ég kemst ekki yfir að gera jafn mikið og ég er vön og jafn hratt. Helgin endaði t.d. með því að við vorum að taka til í skápum hérna heima, henda og koma fyrir niður í geymslu. Þetta tók sinn tíma með tilheyrandi Sorpu ferðum. Núna er búið að búa til pláss fyrir fjórða fjölskyldumeðliminn, sem kemur von bráðar. Ég ætti svo að geta farið að þvo barnaföt fljótlega, þar sem plássið er komið í skúffum og skápum.
Vona svo bara að veðrið verði gott í sumar og vinnukarlarnir hérna fyrir utan drífi sig að klára að mála blokkina, ég nenni nefninlega ekki að hafa þá hérna á svölunum báðu megin á húsinu með öllum þeim látum og brasi sem fylgir þessum framkvæmdum, týpískt samt að blokkin skildi vera máluð sumarið sem ég er kasólétt heima og að skrifa BA!
»
22.05.2008 15:16:24 / teebee
Ég er ekkert öðruvísi en aðrir foreldrar, finnst alltaf jafn merkileg þegar barnið mitt á afmæli og trúi því ekki hvað tíminn líði hratt  Mig langar því tið að óska afmælis stóru stelpuni minni til hamingju með 4 ára afmælið. Það eru afmælis Eurovision partý í kvöld og svo verður alvðru veisla á sunnudaginn með Dóru og Hello Kitty þema! Ég er svo basla við að klára Brussel ritgerðina mína um Schengen, sem á að skila á mánudaginn. Annars er bara allt gott að frétta af okkur. Ps. Nýtt útlit á barnalandssíðuni hennar Elmu Eikar og nýjar myndir í tilefni að afmælinu!
»
09.05.2008 14:22:20 / teebee
Er að jafna mig eftir svæsnustu flensu sem ég hef nokkurtíma fengið um ævina, byrjaði á sunnudagskvöldið og ég er að skríða saman sem er eins gott af því að ég er að fara í síðasta prófið mitt í stjórnmálafræðini á þriðjudaginn. Prófið átti að vera í dag, en ég fékk því frestað, þetta er í raun undanþágupróf síðan um jólin sem ég er að fá að taka núna í stað þess að taka það í ágúst enda verð ég upptekin þá. Ég hef svo viku eftir prófið til að skrifa eitt stk. ritgerð um Schengen. Að þessu skólastússi loknu, er það mál málana, 4 ára afmæli prinsessunar á heimilinu! Jebb það þarf nú nokkra daga í að skipuleggja og vinna í því en mig hlakkar bara til, hún hefur orðið svo mikið vit á þessu öll. Efast ekki um að hún á eftir að hafa skoðanir á öllu sem við kemur þessari veislu. Annars er allt ágætt að frétta, eyddi 2 klst. í morgun í það að fá vottorð og pappíra til að sækja um atvinnuleysisbætur sem maður sækir náttleg rosalega stoltur eða þannig um. Ekki er skipulagið einfalt eða fyrir venjulegan mann að skilja, já og svo hafa námsmenn ekki nein réttindi! Ég fæ vonandi eithvað smá af því að ég hef verið að vinna síðastliðin tvö sumur, eins og ég væri að gera núna ef það vildi einhver ráða mig! Vona svo að þetta hafi ekki áhrif á fæðingastyrkinn minn sem ég á rétt á sem námsmaður og er alveg heilar 100 þús kr! Skil bara ekki af hverju þetta þarf allt að vera svona götótt og flókið. Fólk er ekki að eiga börn til þessa að græða á því en þarf að hegna manni fyrir það? Get ekki varist því að fá pínulítið þá tilfinningu og hvað er málið með réttindaleysið sem námsmaður! HALLÓ, háskólanám er sennilega það erfiðasta sem ég hef tekið mér fyrir hendur fyrir utan móðurhlutverkið og af hverju í ósköpunum eru nemar ekki metnir að verðleikum? Við erum fámenn þjóð sem þarf á því að halda að vinnuaflið mennti sig til þess að geta nýtt það sem best, við þurfum líka að fjölga okkur til að hafa eithvað vinnuafl! Nema við höfum bara hugsað okkur að flytja það allt inn? Þetta er náttlega týpískt íslenskt að mennta sig, eiga börn og eignast húsnæði allt á sama tíma en lýsir þetta ekki líka einhverjum eldmóð og krafti sem aðrar þjóðir hafa ekki í sama mæli og við? Ég vil allvega ekki að þetta verði eins og í löndunum í kringum okkur þar sem konur eru farnar að eiga börn eftir 35 ára, líkur á vandamálum í meðgöngu og því tengdu margfaldast einmitt um og eftir 35 ára og konur eiga færri börn, hver er kosnaður samfélagsins við það, ekki bara heilbrigðis kosnaður heldur einnig að fæðingum fækkar? Jæja ég ætla að hætta að tuða og góða helgi.
»
11.04.2008 11:27:01 / teebee
Ákvað að hressa aðeins síðuna við, ekkert merkilegt, bara að fyrirsögnin sæist! Annars er allt ágætt af mér að frétta, er heima með Elmu Eik núna veika, hún er með flensu vonandi bara! Í kvöld er svo síðasta vísindaferðin í stjórnmálfræðini hjá mér  Ég trúi þessu varla en ég lét af embætti gjaldkera Politicu fyrir viku síðan og á bara eftir að fara í 3 tíma í næstu viku að þá er þetta bara allt búið...... fyrir utan prófin og BA ritgerðina. Ég er svona smá að meðtaka þetta allt, trúi ekki að þetta séu að verða 3 ár! 3 FRÁBÆR ÁR. Ætla nú ekki að fara að missa mig í væmnini hérna, ætla að reina að læra eithvað á meðan sjúklingurinn er að glápa inni í herbergi, hef hvort sem er ekkert rosalega mikið þol til að sitja lengi í einu orðið, þó ég sé nú bara komin 24 vikur á morgun! En þetta reddast allt.
»
29.03.2008 12:07:40 / teebee
Það eru bara allt í einu komnar 2 vikur frá því ég kom heim frá Belgíu!!! Síðustu tveir dagarnir voru nýttir vel í góðu veðri. Á fimmudeginum var frekar stutt dagskrá þannig að ég náði að versla restina af því sem ég ætlaði að versla og fór svo út að borða með Völu um kvöldið. Var frekar þreytt eftir þennan dag, enda mikið labbað, bæði í búðunum og af því að við fengum viðtlaust heimilisfang á einum fundinu okkar og þurftum að labba á milli! Gaman af því. Á föstudeginum var ég endalaust þreytt. Við byrjuðum á því að kveðja Íris eld snemma um morgunin, hún var að fara á skíði einhverstaðar í Evrópu!! Vala fór svo með okkur nöfnum í morgunmat og svo fórum við rétt fyrir hádegið inn til Brussel með lestini og Vala fór í vinnuna en við nöfnur á verslunagötuna í Brussel, þar sem við hittum liðið, sem var að nýta síðustu klukkustundirnar til að gera reifara kaup þrátt fyrir gengi evrunar. Á þessu rölti tókst mér að klára batterýið á símanum mínum og það einmitt þegar ég hafði aðeins skroppið ein, í nokkrar búðir!! Heppin ég alltaf, en það reddaðist samt að lokum, var hætt að finnast þetta fyndið þegar ég labbaði fram á Vigni, Guði sé lof að hann á einga sér líka og maður þekki hann hvar sem er í heiminum. Ég var sko rúmlega búin á því á föstudagskvöldinu eftir allt labbið og þvælinginn, svo var ég farin að finna fyrir því að ég er náttlega ekki kona einsömul. Við Vala fórum enn og aftur bara einar út að borða um kvöldið og svo fór ég bara á skikanlegum tíma að sofa enda lögðum við mjög snemma af stað á laugardagsmorgunin heim. Vöknuðum kl 6 á laugardagsmorguninn, sem er 5 á ísl. tíma. Fyrst var það lestin og metróið frá Leuven, á hótelið til krakkana í Brussel. Þar beið rútan okkkar og keyrði með okkur beinustu leið á flugvöllinn í Hollandi, sem tók tæpa 3 tíma. Á flugvellinum tók við massa brun um allt, ég og Krissi ætluðum sko að fá Taxfreeið okkar!! Það tók mikið labb og 30 mín. vinnu en ég fékk sko 75 evrur til baka, ekkert smá sátt eftir að hafa smjaðrað fyrir tollurunum, Krissi sagðist aldrei hafa séð annað eins  Ótrúlegt en satt, þá gekk tékkið inn með Krissa mjög stuttan tíma og ekkert vesen (Krissi er nefninlega þessi týpa sem er frekar óheppinn). Flugið heim var svo bara svít og heimkoman ekkert smá ljúf um kl 16.00 á laugardeginum. Það var svo ÓGEÐSLEGA GOTT að sjá Elmu Eik, var búin að sakna hennar svo mikið. Hún var líka svo glöð að sjá mig og ánægð með öll fötin sem ég keypti handa henni, hún leit ekki við dótinu, vildi bara máta öll dressin!! Stelpan mín  Á sunnudeginum tóku timburmennin við!! Ekki í eiginlegri merkingu heldur, námslega. Ég er búin að vera sveitt frá því ég kom heim, sérstaklega við ritgerðasmíðar, sem taka alltaf lengri tíma en þær ættu að gera hjá mér. Ég lærði heima og svaf alla páskana og náði að klára eina stæstu ritgerðina mína fyrir utan BA ritgerðina. Fjöskyldan var svo öll hjá okkur í kalkún á páskadag, sem heppnaðist rosalega vel, enda sá Hörður um eldamennskuna af sinni snild. Það er semsagt ekkert nema nám framundan, ég er að reina að klára ritgerð um helgina og á þá eftir 5 bls verkefni og svo bíður lokaritgerðin ó hreyfð frá því fyrir Brussel ferð  Ofan á þetta fæ ég öll prófin mín 3 og skil á BA ritgerðini öll á einni viku, síðustu vikuni í apríl, þetta skipulag er að fara rosalega í taugarnar á mér og ég farin að velta því fyrir mér hvort að ég eigi enn og aftur að fórna geðheilsuni fyrir námið!!! En ég ætla að sjá hvernig gengur næstu vikuna og dagana, er bara rosalega pirruð yfir þessu típíska HÍ ekki skipulagi. Jæja ég verð að fara að koma mér að verki, er orðin stressu við að hugsa um þetta allt.
»
13.03.2008 09:07:53 / teebee
Jæja þá er bara komin fimmtudagsmorgun í Belgíu!! Búið að líða frekar hratt bara, þrátt fyrir heimþrá. Á mánudaginn fórum við í heimsókn til Nato, sem var ágætt, frekar þurir fyrirlestrar og langur dagur en hópurinn er svo skemtilegur að við gátum hlegið og gert gaman inn á milli....... já og sumir lögðu sig líka á fyrirlestrunum! Kl 17.00 var okkur svo boðið í koktel til ísl. sendiherrans í Nato, sem var alveg rosalega flott mótaka. Hann tók á móti okkur heim til sín, spjallaði við okkur, flæðandi áfengi (djús fyrir mig) og ekkert smá flottir smáréttir sem okkur voru færðir af þessari líka brosmildu konu. Ég hef nú farið í þau nokkur boðin og ég held að þetta sé það flottasta. Eftir þetta fórum við nöfnurnar og Íris bara heim til Leuven, enda búnar að vera í dagskrá frá því fyrir sjö um morguninn. Þriðjudagurinn var nú frekar spes, við vöknuðum kl 6, sváfum næstum yfir okkur en mættum á réttum tíma niður á hótel til að verða samferða fólkinu í rútuni en ferðini var heitið í hernarhluta Natos sem var alveg klukkutíma akstur. Við tók bið eftir rútuni sem endaði með að koma klukkutíma of seint af því að bílstjórinn fann hana ekki um morguninn!!! Einmitt, hann týndi rútuni! Við tók vafasamasta rútuferð sem ég hef farið í og rassbleita af því að einhverahluta vegna voru sætin öll rök!! Við mættum náttlega allt of seint í móttökuna en það var ekkert smá næs pólskur hermaður sem var leiðsögumaðurinn okkar. Hann gerði bara gott úr þessu og setti okkur inn í fristiklefan, eða fyrirlestra salinn sem hann var búin að stilla hitann í...... já sesagt frysti okkur til að halda okkur vakandi yfir fyrirlestrinum sínum. Eftir það voru svo umræður þar sem við bættust þjóðverji og Hollendingur sem voru frekar hressir bara. Eftir þetta tók við rúntur um beis svæðið í rassblautu rútuni og þvílíkt löng leið til baka í SÞ. Ekki veit ég á hvaða lyfjum þessi blessaði rútubílstjóri var á, en heimferðin tók óratíma og svo þegar við töldum okkur nú vera mætt í SÞ að hitta Árna Snævar og laus við rútuna, komumst við að því að við vorum með vitlaust heimilisfang og þurftum að labba í ca 15 mín í rigninguni...... já og næstum tveimur tímum of sein!!! Það var því bara stutt spjall í SÞ og svo kom Vala systir að hitta okkur og við fórum aðeins í HogM!!!! Jibbí Þessi verslunarferð sló aðeins á það versta hjá okkur nöfnunum. Við borðuðum svo saman á ítölskum veitingastað með enga matseðla. Enn og aftur var það svo lestin og metróið og heim til Völu í beddann. Í gær var rosa dagskrá í sendiráðinu í átta liðum og þar af var einn um Schengen sem Vala systir tók þátt í. Þetta var rosalega fjölbreyttir og gagnlegir fyrirlestrar sem enduðu svo með koktel með sendiherranum og starfsmönnum. Ég var alveg komin með nóg eftir þennan dag og við Vala fórum bara heim í tjillið en restin af liðinu fór á djammið. Jæja nú er ég farin að fá mér morgunmat hérna og kíkja í eina búð svo verður dagskrá eftir hádegið, á morgun er svo frí.
»
Síður: 1 2 3 ... 14
|
|