Þá eru páskarnir búnir og ekkert nema vorið og svo sumarðið sem
bíður. Talandi um sumarið þá er ég á leiðini á Justin
Timberlake tónleika í Parken þann 23 júní!!!! Ég var svo glöð
að ég hoppaði og dansaði
Hlakkar heldur ekkert mina til að
hitta Heiðu Sigrúnu en Justin að vísu og kannski kíkja smá í
H&M
Svo í haust ætla ég og Sigurjóna að heimsækja
Völu systur í Belgíu, þannig að sumarið er sérstaklega spennandi
hjá mér.
Fyrir páska hlaut ég kosninga sem gjaldkeri Politicu, sem
er félag stjórnmálafræðinema við Hí. Ég kem því til með að
halda utan um budduna allt næsta árið og skipta mér af
öllu öðru ef ég þekki sjálfa mig rétt!! Fyrsti
fundurinn var einmitt í dag hjá okkur og ég lagði fram hugmynd
sem mér finnst ákaflega spennandi og á eftir að fylgja henni
eftir og undirbúa í sumar, mér tókst allvega að sannfæra Vigni
formann að lokum eða selja honum hugmyndina.......... en æi
þessi karlmenn eru alltaf svílítið sló!
Páskarnir voru freka notalegir, lærði smá (ekki nóg samt),
fengum gesti í grill, kíktum á kaffihús og svo var fyrsti
kalkúnninn okkar eldaður og þó ég segji sjálf frá heppnaðist hann
alveg rosalega vel og með okkur snæddu hann, mamma, pabbi,
Sigurjóna, Kristín og tengdó og fóru allir saddir og glaðir heim á
páska kvöld.
Í kvöld þarf ég að klára síðustu ritgerðina á önnuni og á morgun
klára ég síðasta verkefnið. Ég er því að hefja próflestur um
helgina en fyrsta prófið er 30 apríl. Annað kvöld ætlum við í
nýju og gömlu stjórninin hinnsvegar að gera okkur glaðan dag heima
hjá Steina og jafnvel sötra smá, hlakkar til.
Góða helgi