Stelpurnar mínar
19.02.2008 20:49:00 / teebee

Bumba

Mér finnst bumban á mér allt í einu bara vera komin út um allt, rekst alltaf í borð sem ég sit við.  Ég er svo nærsýn að ég sé t.d. ekkert á tölvuskjáinn eða kannski bara vanaföst.  Ég er semsagt að fara að færast frá borðum næstu mánuði og enda út á miðju gólfi geri ég ráð fyrir. 
Helgin gufaði upp á ótrúlegum hraða með tveimur barnafmælum og sundferð....... já og einni slysó ferð, Elma Eik fékk nefninlega gat á hausinn á laugardagskvöldið.  Það besta við helgina var samt að kíkja út að borða með Heiðu Sigrúnu og Selmu vinkonu á föstudagkvöldið, ekkert smá notalegt og Selma kom með fullt af punktum varðandi lokaritgerðina mína ;)  Jebb ræddum bissness og allt sko!    Ég var bara þreyttari eftir helgina en fyrir helgi, er reindar búin að vera extra þreytt síðustu daga örugglega bara vaxta kippur í gangi hjá krílinu.  Á föstudagskvöldið næsta er svo Politicu árshátíðin, þar sem öllu verður tjaldað til og pottþétt massa gaman.  Sigurjóna systir er að sauma á mig kjól (óléttu fata krísan leyst þannig), svo ætlum við í brúnkumeðferð á fimmtudaginn, restin af meðferðunum verða bara teknar hérna heima, maður verður að sparsla og græja það sem hægt er á þessu síðustu og verstu :haha:
Er að fara í aðra mæðraskoðunina mína á morgun og 3. sundtímann, ég er að segja ykkur það, það er full vinna að vera ólétt.  Svo er ég ekki frá því að ég sé farin að finna smá hreyfingar, svona eins og loftbólu/meltingatruflanir, ef það útskýrir eithvað.
Svo að lokum verð ég aðeins að kommenta á stjórnmálin í borgini, hafið þið ekki tekið eftir því hvað Hanna Birna er allt í einu farin að brosa í sífellu og sýna sparhliðarnar?  Ég spái því að Vilhjálmur stígi niður sem oddviti og Hanna Birna taki við innan skamms, hún nýtur traustsins og er búin að vera mjög þæg og góð stelpa og fara eftir öllum leikreglunum í flokknum.  Ég er að vísu ekkert allt of hrifin af henni en hún hefur vaxið mikið síðustu vikur hjá mér, en það er samt á hreinu að þarna fer rosalega klár og flott kona með bein í nefinu.

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.02.2008 09:52:59 / teebee

Það er að koma helgi

Já það er föstudagsmorgun og við mæðgur sváfum aðeins lengur, reindar er Elma Eik enn sofandi!  Það kemur nú reindar til af því að í gærkvöldi fórum við Hörður út að borða og í danskennslu á vegum Politicu og hún í pössun til ömmu Dúnu.  Elma Eik ákvað bara að bíða eftir okkur, ekkert að fara að leggja sig hjá ömmu sinni, var þessvegna í fullu fjör um kl 23.30 þegar við sóttum hana 8|  Við Hörður hinsvegar fórum á Caruso sem er okkar staður og hann klikkaði ekki frekar en fyrri daginn, enda dagur elskenda, Valentínusardagurinn.  Mér finnst ekkert að því að halda upp á amerískan dag ef það henntar manni!  Ekki spilti svo fyrir kvöldinu að fara á Glaumbar þar sem Politica stóð fyrir dansæfingu fyrir nemendur.  Þetta var í tilefni af árshátíðini sem verður í næstu viku og ég er ekki að ýkja þegar ég segi að þetta sér sko topp 5 atburður í sögu ferils míns í stjórnmálafræðini, algjörlega priceless!  Verð að viðurkenna að óléttan hafði sitt að segja hjá mér, hefði viljað geta tekið betur á þessu, enda með tvo atvinnu dansara sem kenndu okkur.  Já þetta var frábær Valentínusardagur.

Ég er byrjuð í meðgöngusundinu, fór í fyrsta tímann á miðvikudaginn og fann það bara strax hvað ég hef gott af þessu í alla staði, hlakkar bara til að kynnast einhverjum, annars skipti ég um hóp í næsta mánuði og verð í honum væntanlega.  Ég hitti svo líka leiðbeinandan minn útaf lokaritgerðini í vikuni og það var mikill léttir og hún kom með smá hugmyndir og staðfesti breytingapælingar hjá mér, þannig að nú er bara að hætta að plana og fara að gera eithvað.  Ég er bara búin að vera eithvað svo bissí alla vikuna, við ég veit ekki hvað, afi og amma eru jú í bænum og við hittum þau og ég bauð þeim í kaffi (með tilheyrandi skutli), allt tekur þetta allt of langan tíma.

Helgin verður afmælishelgi, það eru tvö barnaafmæli! Ég læri nú yfirleitt heldur ekki mikið um helgar en ég verð að gera það þessa helgi, enda svo sem búin að þrýfa og svona hérna heima þannig að ég ætti að geta sest á rasssssgatið og lært!  Sjáum til eftir helgi hvernig það gekk?

P.s. Svo er komin tími á fólk með jólaseríur, inni sem utandyra að rífa þetta niður!  Sísonið er alveg búið sko, það fara að koma páskar.

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 10:54:04 / teebee

Öskudagur

Ég er eithvað voðalega morgunfúl og ekki vöknuð þó að klukkan sé að verða 10 á öskudegi.  Ég kom prinsessuni í prinsessu kjólinn, krullaði hárið á henni og málaði fyrir leikskólann.  Þegar í leikskólann kom tóku á móti okkur ca 10. prinsessu að öllum gerðum!  Þær ætluðu semsagt allar að vera prinsessur á öskudaginn og þar með dóttir mín.  Ég skutlaði Herði svo í vinnuna þar sem allir eru í sínu daglegu búningum, jakkafötum og fínt fínt en ég hinnsvegar er mætt á Kaffi tár að fá mér beyglu og te í jogging galla.  Ég veit ég er alltaf að reina að taka mig til og vera ekki lufsa en það er bara greinilega ekki að gera sig nógu vel.

 

Dagarnir hjá mér eru frekar skrítnir, er bara í skólanum 2x í viku og hina dagana er ég bara að hugsa um allt sem ég þarf að gera en kem litlu í verk.  Ég þarf t.d. að skrifa 4 ritgerðir plús lokaritgerðina og ég jú hugsa mikið um þær en er bara ekki að komast lengra en það.  Með lokaritgerðina er ég í einhverri krísu, var búin að gera fínt plan og skipulag á þessu öll fyrir jól en núna langar mig til að breyta því öllu.  Ég er bara ekki nógu skipulögð held ég, hélt að ég myndi aldrei segja þetta! 

 

Um helgina var aðalega fjölskyldu tími, ég kíkti að vísu í Vökupartý niður í bæ í klukkutíma á föstudagskvöldið.  Á laugardaginn klæddum við okkur rosalega vel fjölskyldan og forum á laugarveginn að rölta og svo í mat til mömmu um kvöldið.  Á sunnudaginn var svo bollukaffi hjá okkur, stjórfjölskyldan í Galtalind mætti í kaffi og það voru nokkar bollur borðað eða þannig!

 

Amma og afi eru að koma í bæinn á morgun þannig að það verður gaman að hitta þau og svo fer afi út á fótbolta leik en amma verður yfir helgina.  Ég ætla svo að leggjast í smá efnisvinnu í kringum lokaritgerðina og svo ætla ég í vísó í Icebank.  


» 1 hafa sagt sína skoðun